Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
17.6.2025 | 15:36
Með lygum á ekki landi að stjórna.
Það er leitun að öðrum eins ófögnuði og núverandi ríkisstjórn er.
Það vantaði ekki fögru fyrirheitin þegar lagt var af stað í vegferðina, sungið og trallað, allt átti að verða miklu betra en áður hafði tíðkast.
Síðan hafa svikin hlaðist upp, fögru fyrirheitin eru geymd í framtíðinni, í núinnu er enginn peningur til nema í stríðsrekstur og stríðsbrölt undir yfirskininu "að efla varnir þjóðarinnar".
Mannlíf á landsbyggðinni sætir stöðugum árásum, bætt er í svik fyrri ríkisstjórna með vanfjármagnað vegakerfi, þar sem þó er gert er þannig að hinir nýju vegir eru strax hálfónýtir vegna meintra loftslagstrúarbragða. Loftslagsskattar, sem leggjast þungt á hinar dreifðu byggðir, bæði samgöngur og flutninga, hækkaðir, eða boðuð hækkun á þeim, og vegið er að atvinnuvegum hinna dreifðu byggða.
Síðan er stríðsbröltið réttlætt með því að núna þurfi að fara inní Evrópusambandið, fyrst að samþykkja bókun 35, svo að sækja um aðild. Gleymd eru fyrirheitin um einhverja þjóðaratkvæðagreiðslu 2027.
Verst eru hins vegar lygarnar, hinar beinu rangfærslur sem eru út um allt í umræðunni.
Fremst er þar atvinnuvegaráðherrann og frumvarp hennar um sérstaka ofurskatta á fyrirtæki landsbyggðarinnar.
Núverandi tekjuskattur, þó hár sé, er ekki nægur, viðbótar ofurskattur er lagður á sjávarútveginn undir falsorðinu "auðlindagjald", tungumál andskotans notað til að tala um slíkan ofurskatt sem eitthvað sérstakt réttlætismál, að þjóðin eigi að fá arð af sinni sameiginlegu auðlind.
Eins og arðbærasta atvinnugrein þjóðarinnar því hún skilar svo miklu margfeldi út í samfélagið, greiði enga skatta og gjöld.
Núna hefur atvinnuvegaráðherra verið staðin að því að fara með beina lygi og ósannindi í forsendum og kynningu á þessu ofurskattlagningafrumvarpi sínu.
Viljandi var vitlaust reiknað til að reyna réttlæta ofurskattinn, eins og það sé hægt að réttlæta sérstakan ofurskatt á eina atvinnugrein umfram aðrar.
Það og margt fleira var afhjúpað í grein sem birt var á vef Samtaka fyrirtækja í sjávarútveginum, eitthvað sem Morgunblaðið hefur gert ágæt skil og óþarfi að reifa frekar.
Mig langar að vitna í góða grein eftir núverandi formann Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, sem birt var í Morgunblaðinu í dag; "Skyldu þingmennirnir hafa áttað sig á því að það var enginn Norðmaður sem fór yfir meinta útreikninga á verðmyndun á uppsjávarfiski, þvert á það sem fjármálaráðherra hélt fram við kynningu á málinu þegar hann sagði mesta sérfræðing Norðmanna í verðmyndun uppsjávarfisks hafa staðfest þá?".
Þetta er það sem kallast á mannamáli að ljúga, þó í grein SFS er þessi fullyrðing aðeins sögð ósönn. Þar reyndar líka er klykkt á hvers eðlis vinnubrögð atvinnuráðherra eru; "Fullyrðingar ráðherra um að frumvarpið byggist á ítarlegri greiningu eru einfaldlega rangar, eins og margoft hefur verið sýnt fram á."
Það er eitthvað mikið að þegar ráðherrar komast upp með svona vinnubrögð átölulaust.
Þessi ofurskattur hefur afleiðingar, hann er aðför að landsbyggðinni. Vitna aftur í sveitunga minn Gunnþór; "Það á að flýta fyrir sameiningu fyrirtækja, fækka störfum á landsbyggðinni og flytja fjármagnið til Reykjavíkur.".
Því bein afleiðing svona ofurskattlagningar er að smærri útgerðir sjá sér hag í að selja kvóta i stað þess að halda áfram að strögla.
Eftir munu standa örfá stórfyrirtæki með alræði yfir landsbyggðinni.
Og það er félags og jafnaðarfólk sem styður þennan ófögnuð nýfrjálshyggju Viðreisnar.
Líkt og annar þingmaður Samfylkingarinnar í Norð-Austur kjördæmi, fyrrum forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar.
Byggðar þar sem þrjú öflug sjávarútvegsfyrirtæki eru hryggjarstykkið í atvinnulífinu.
Maður spyr sig undir hvaða hæl er svona fólk, eða er það firrt viti um leið og það kemur inn fyrir dyr Alþingis?
Að það telji rétt að skaða sitt eigið byggðarlag.
Að það bregðist fólkinu sem studdi það til áhrifa, sendi það suður til góðra verka.
Hvað sem öðru líður stendur eftir berstrípuð lygastjórn með lygaráðherrum.
Ráðherrum sem eru farnir að væla og gjamma eins og klerkarnir í Íran, hótandi hefndum líkt og atvinnuvegaráðherra í nýlegri blaðagrein og lesa má um í pistli dagsins hjá Páli Vilhjálmssyni; "Það er hins vegar grafalvarlegt mál þegar viðbragð þessara sömu hagsmunaafla er að ráðast að stofnunum ríkisins að því er virðist í þeim tilgangi að þvinga fram aðra niðurstöðu. Við því verður brugðist af fullum þunga."
Að leiðrétta lygar og rangfærslur, að láta ekki kúga sig með ósannindum, kallar ráðherrann sem sagt að það sé árás á stofnanir ríkisins.
Og þess skal hefnt, eins gott að klerkarnir í Íran eiga ekki eldflaugar til afnota fyrir hefndarþyrsta ráðherra.
Svona á ekki að stjórna landinu, hvernig sem svo sem annars á að stjórna því.
Það er allt svo rangt við þetta, bæði sérstaki ofurskatturinn á landsbyggðina sem og að reynt sé að réttlæta hann með ósannindum.
Svo er bara bullað og logið og hótað, þingmennirnir, sem reyna að réttlæta flumbruganginn, bulla út í eitt í sjónvarpinu, ráðherranir fara rangt með og hóta þegar upp kemst um strákinn Tuma.
Verst er samt að þetta er í takt við allt annað hjá núverandi ríkisstjórn.
Ríkisstjórn hinna syngjandi fögru fyrirheita.
Það er eitthvað mikið að hjá þjóð sem sættir sig við svona ófögnuð.
Og það er kannski meinið.
Það er eitthvað að.
Eitthvað mikið að.
Kveðja að austan.
![]() |
Útreikningar Skattsins gilda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.6.2025 | 11:13
Smánin.
Það er aur í glæpum og sá aur leitar víða í vasa auðfúsra þiggjenda.
Skipulögð glæpastarfsemi þrífst í skjóli spillingar sagði fulltrúi Europol sem var hér á landi nýlega.
Á yngri árum hristi maður hausinn þegar maður horfði á bíómyndir eins og Bangkog Hilton, þar sem gjörspilltir lögreglumenn störfuðu með glæpasamtökum, þau létu þá vita af einu og einu burðardýri sem mátti missa sig, þá fengu lögreglumennirnir athyglina frá fjölmiðlum, sem og þungu dómana.
Og jú einnig aur í vasann en glæpasamtökin friðinn til að stunda sína iðju óáreitt.
Þegar ég varð eldri gat ég ekki lengur horft framhjá því að sama stef var leikið hér í fjölmiðlum á Íslandi.
Stóra þetta og stóra hitt, öll málin sammerkt að upp komst um innflutning utanaðkomandi á markaðnum, framboðið minnkaði aldrei enda þeir sem áttu markaðinn óáreittir.
Seinna var upplýst að þekkt nöfn í bransanum nutu verndar lögreglunnar, þeir voru sko svokallaðir uppljóstrar, núna síðast komst upp um slíka friðhelgi í sambandi við aftökuna í deilum albönsku mafíunnar við aðra glæpahópa.
Hin meinta uppljóstrun snérist sem sagt um að koma upp um nýja aðila, mikill aur í vasa hlýtur að skýra þá fáheyrðu heimsku.
Síðan er það menn sem rugga bátnum, taka ekki þátt í hinni arðbæru samtryggingu, einn slíkur var Lúðvík lögreglustjóri á Suðurnesjum.
Framhjá Reykjavíkurvaldinu tók hann að framfylgja lögum og reglum á landamærunum, ekki bara að vísa þeim frá sem alþjóðaglæpasamtökin sendu til landsins undir skjóli þess að vera meintir flóttamenn, heldur líka að ráðast á dópinnflutninginn, á sjálfa tekjulindina sem skapar aurinn sem leitar víða.
Hans banabiti var síðan að benda á hið skítuga samstarf glæpamanna og hinna dýru lögfræðinga, það gátu bakhjarlar Viðreisnar ekki þolað, og dómsmálaráðherra var falið að grípa inní.
Annar steinn í götu hins frjálsa flæðis var Helgi Magnússon vararíkissaksóknari, samviskusemi hans og tæpitunga varð honum að falli.
Hann hafið ekki vit á að halda sig við Wókið og gefa hinum gefandi (í vasa) lausan tauminn, og Wókið var notað til að fella hann enda Wók hinn nýi sannleikur guðs á jörðu, ekki meitlaður í stein heldur hina nýju trúarsetningu þjóðkirkjunnar.
Skilaboðin skýr, ekki gera skyldu ykkar.
Hvernig Ísland varð svona spillt má guð vita.
Í kjarna og arfleið erum við gott og heiðarlegt fólk, höfum samt lotið í lægra haldi fyrir asnanum klyfjaðan gulli.
Lögreglan tekur sama skýrslu og greinir frá að hér séu rekin 12 vel skipulögð glæpasamtök og svo er ekkert gert.
Næst mun verða gerð skýrsla, með sama inntaki, nema þá er talan búin að hækka úr 12 í 20, jafnhliða því að óöldin eykst og glæpasamtökin skeyta æ minna um að leyna starfsemi sinni eða baráttunni um markaðinn.
Ekki í trausti þess, heldur vissu að trúnaðarfólk almennings horfi í hina áttina, svona á meðan það fær einn og einn smáglæpamanninn til að rétta yfir og dæma.
Smán þessa alls að þetta skuli viðgangast, að þetta skuli vera svona, kristallast í þessum orðum hinnar meðvirku, Þorbjargar Sigríðar Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra; "Hann er góður lögfræðingur og málflytjandi og ég óska honum velfarnaðar í leik og starfi,".
Þegar ég las þennan yfirdrepskap, þá varð fyrirsögn þessa pistils til og það sem á eftir kom, flæddi af sjálfu sér.
Það er ekki logið uppá þetta fólk, allavega hvað varðar æru og sóma.
Smán þess er mikil.
Nei, reyndar ekki, hún er algjör.
Kveðja að austan.
PS. Önnur birtingarmynd um aðför hins Skítuga fjármagns að samfélagi okkar og framtíðar sem þjóðar, má lesa í afburðagóðum pistli Arnars Þórs Jónssonar, í tilefni 17. júní. Pistill sem ætti að fara inná hvert heimili og vera lesinn upp til agna.
Hvers vegna höldum við þjóðhátíðardaginn hátíðlegan?
Með annarri kveðju að austan.
![]() |
Helgi Magnús fer beint á eftirlaun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.6.2025 | 16:22
Væri ekki fyrsta skrefið að krefjast brottreksturs ríkissaksóknara??
Verndara glæpasamtaka, sérstaklega alþjóðlegra.
Wókið segir jú að óheftur innflutningur, sem stjórnað er af mannsals og flóttamannaiðnaðinum, sé góður innflutningur.
Enda hver vill til dæmis innlenda plebba þegar hægt er að fá albönsku mafíuna til að stjórna dyravarðamarkaðnum og dópsöluna á hans vegum??
Af hverju þá að benda á ríkissaksóknara???
Því svaraði talsmaður Sambands lögreglumanna, lögreglumenn sem sæta hótunum eða ofbeldi, njóta ekki verndar ríkissaksóknara.
Efist einhver, spyrjið þá næstráðenda núverandi ríkissaksóknara, líflátshótanir í hans garð voru léttvægnar fundnar af hálfu yfirmanns hans.
En þegar sannleikurinn var sagður um innflutning alþjóðlegar glæpasamtaka á meintum flóttafólki til Íslands, þá heyrði ríkissaksóknari, enda sannleikur eitur í eyrum Wóksins, það er fátt sem fífl og fávitar óttast meir en blessaður sannleikurinn.
Dugi þessi brottrekstur líklegast óhæfasta embættismanns Íslandssögunnar, þá ættu Hagsmunasamtök verslunarfólks að spyrja sig af hverju Viðreisn lét reka Vörðinn á landamærum þjóðarinnar??
Er dómsmálaráðherra mjög heimskur??, eða hefur þessi brottrekstur eitthvað að gera með hagsmunagæslu lögfræðinga glæpasamtakanna, því Lúðvík lögreglustjóra varð það á að benda á að í hvert sinn sem embætti hans tæki meinta albanska glæpamenn, sem samkvæmt skýrslum áttu ekki bót fyrir boru sinni þó eignir og lífsstíll segði annað, þá kæmu hálaunaðir stjörnulögfræðingar úr Reykjavík, ybbandi gogg, spyrjandi hvaða útlendahatur stjórnaði löggæslunni, hennar glæpur að reyna hamla gegn alræði hinna alþjóðlegu, glæpum þeirra, þjófnaði, innflutning og dreifingu á eiturlyfjum.
Þessi brottrekstur er líklegast skýrasta birtingarmynd þess sem fulltrúi Europol á Íslandi benti á skýringu þess að ill-erfiðlega gengi að uppræta starfsemi hinna alþjóðlegu glæpasamtaka, spillinguna heima fyrir.
Það er jú aur í glæpum, og ef réttum aðilum er borgað, þá er afskiptasamur lögreglustjóri rekinn.
Það gerist ekkert af sjálfu sér.
Allt á sér skýringar.
Lögreglumenn njóta ekki verndar.
Lögreglustjóri sem vinnur vinnuna sína er rekinn.
Á meðan breytist Ísland hægt og róglega í glæpasamfélag.
Líkt og Svíþjóð, í aðeins minna mæli Noregur og Danmörk.
Danir andæfa þó.
Ráðalaus almenningur læsir að sér.
Skilur ekkert í snarhækkuðum tryggingargjöldum sem borga þjófnaði hér og þar.
Skilur ekkert í fréttum af ofbeldi og líkamsárásum, og þá er ég ekki að tala um ofbeldi múslímskra barna í Breiðholti, heldur sífréttir af skaðlegum líkamsárásum, vopnaburði glæpafólks, árásum á lögreglu og hótanir í garð lögreglumanna.
Kýs samt Góða fólkið, og 76% segjast styðja ríkisstjórn þess.
Styður aðförina að lög og reglu.
Styður aðförina að sjálfstæði þjóðarinnar svo auðræningjar Hrunsins geti farið öllu sínu fram.
Skilur svo ekki neitt í neinu.
Eins og sárkvalinn hundur sem leitar í barsmíðar eiganda síns.
Gangi Hagsmunasamtök verslunarfólks vel með að stuðla að auknu öryggi verslunarfólks.
Gangi lögreglumönnum vel að njóta verndar laga og reglna.
Gangi landsbyggðinni vel þegar búið er að drepa síðasta sjálfstæða útgerðarmanninn og stórfyrirtækin eru ekki lengur skuldbundin að sýna samfélagslega ábyrgð.
Gangi fólkinu, sem vantar fjármagn í velferðarþjónustuna, vel að útvega það fjármagn á meðan mannsals og flóttamannaiðnaðurinn stjórnar hinni opinberu umræðu, sem og mörgum ráðherrum ríkisstjórnar Góða Fólksins.
Gangi öllum vel þó raunveruleikinn segir annað.
Um keypta stjórnmálamenn og spillta embættismenn.
Þar sem á hverjum degi er haldið áfram að grafa gröf þjóðar okkar, tungu og menningu.
Og glæpalýður er að eignast landið.
Ekki bara sá alþjóðlegi heldur fyrst og fremst þeir sem rændu þjóðina eftir Hrunið, urðu ofsaríkir á kostnað almennings.
Komnir aftur, ráða öllu í gegnum taglnýtinga sína í ríkisstjórn Góða fólksins.
Kannski er þetta bara svona.
Froskurinn í heita vatninu sem á að sjóða hann, þegar hann sjálfviljugur biður um meiri hitun, þá er honum ekki viðbjargandi.
Valkostur hans var jú að stökkva uppúr hinum sjóðandi potti.
76% þjóðarinnar styðja þessa aðför að samfélagi okkar og sjálfstæði.
Hvað getum við hin sagt??
Meira að segja Stuðmenn áttu ekki svarið.
Kveðja að austan.
![]() |
Verslunarfólk sameinast gegn ofbeldi og áreiti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.6.2025 | 12:03
Verðir stjórnarskráarinnar!
Eru Verðir sjálfstæði þjóðar okkar, smáþjóðar sem taglhnýtingar Evrópusambandsins sækja nú grimmt að.
Frá því að Feður Bandaríkjanna sömdu stjórnarskrá fyrir hið nýja lýðveldi, skrá sem geirnegldi stjórnskipan og grundvallarlög, hafa allflest ríki heims sett sér stjórnarskrá í svipuðum tilgangi.
Og allflest ríki heims virða stjórnarskrá sína.
Jafnvel þeir sem vilja ráða einir, líkt og til dæmis Erdogan Tyrkjaforseti, hafði fyrir því að breyta stjórnarskránni áður en jók völd sín og einráð.
Flest lýðræðisríki verja stjórnarskrá sína þegar að henni er sótt, nýjasta dæmið er frá Suður Kóreu þegar fráverandi forseti setti herlög í trássi við lög og reglur, og þingmenn landsins brutust inní þinghús landsins og settu hinn valdagráðuga forseta af.
En stundum er ógnin of mikil og þá er ekki gott að vera Vörður stjórnarskráarinnar.
Þekktasta dæmi þar um er þegar þáverandi utanríkisráðherra Tékkóslóvakíu, Jan Masaryk sagði kommúnistum að það gengi ekki að fella einhliða gömlu stjórnarskránna úr gildi, hún væri hornsteinn lýðveldisins. Þá var hann reyndar ekki ausinn auri að hætti götustráka, heldur var honum hjálpað út um gluggann á ráðuneyti sínu, fall hans var upphaf af 50 ára einræði kommúnista í landinu.
Í Ungverjalandi 1956 vitnuðu landsmenn í stjórnarskrá sína, sem og stofnsáttmála yfirríkisins; Varsjárbandalagsins, og sögðu að þeir mættu bæði ráða sínum málum sjálfir, og ganga úr yfirríkinu.
Réttmæt rök líkt og kæra Þjóðfrelsis á hendur utanríkisráðherra, og réttmætum rökum er oftast svarað með skítkast og eða valdi.
Innanlands kæfðu skriðdrekar hina réttmætu frelsiskröfu, utanlands rægðu taglhnýtingar Varsjárbandalagsins hina frelsisleitandi þjóð sem vitnaði aðeins í stjórnarskrá sína.
En jafnvel þó Þjóðviljinn verði lúslesinn þá finnst ekki þar annars eins skætingur eins og í skrifum þessa taglhnýtings, sem fjölmiðlar hafa kosið að vitna í.
Þó kölluðu kommarnir ekki allt ömmu sína í þessum fræðum.
Kostur þessara skrifa er samt sá að þau skýra víglínuna í þessari sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar.
Annars vegar eru það Verðir stjórnarskráarinnar, hins vegar eru það taglhnýtingar Evrópusambandsins.
Annars vegar fólkið sem ver sjálfstæði þjóðarinnar, hins vegar þeir sem vilja kasta því fyrir ætternisstapa.
Og í þeirri skítaiðju virða taglhnýtingarnir hvorki lög eða rétt.
Telja stjórnarskrá lýðveldisins einskisvert plagg sem ekki þarf að taka tilliti til.
Meir að segja nasistarnir virtu lög, meir að segja kommúnistarnir virtu lög.
En ekki taglhnýtingarnir.
Það er fyrir neðan þeirra virðingu.
Verðirnir munu standa af sér þetta skítkast.
Dómstólar munu skera úr um hvort þeir séu sjálfstæðir og virði stjórnarskrána í útskurði sínum.
Eða hvort yfirvaldið sé þegar búið að samlaga þá.
Stjórnarskráin er allavega skýr.
Bókun 35 er skýr brot á henni.
Og hegningarlögin eru skýr að það sé landráð að koma innlendum lögum undir erlent yfirvald.
Það er þess vegna að einu mótrökin eru; "Þetta er aumkunarvert uppátæki".
Og grátnir þeir tímar þegar hægt var að hringja í yfirvaldið og biðja um aðstoð skriðdreka.
Gegn lögum og reglu.
Gegn sjálfstæði þjóðar.
Kveðja að austan.
![]() |
Segir kæru Þjóðfrelsis aumkunarvert uppátæki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (16)
13.6.2025 | 17:32
Öld kerlingarinnar!!
Með vísan í voðaverk Anders Breivik í Útey 2011, þegar hann komst upp með að drepa tugi ungmenna, á meðan þyrlur sveimuðu yfir, og hann drap ungmennin í beinni útsendingu.
Skýring þess að enginn gerði neitt hjá norsku lögreglunni, var útskýring kerlingar, sem reyndar var kona, sem og lögreglustjóri, að vegna þess að morðin voru á eyju, þá sögðu verkferlarnir að bátasveit norsku lögreglunnar átti að koma á vettvang og bjarga ungmennunum, nema að bátar hennar voru bilaðir, og þá var ekkert gert.
Breivik greyið, sem var illmenni en ekki kerling, ætlaði að gefast upp fyrir lögreglunni, en hún kom ekki, þá hélt hann bara áfram að drepa.
Öll þau dráp voru á ábyrgð kerlingarinnar, þeirrar úrkynjunar að verkferlar, hugmyndafræði, eða annað sem fær ekki fólk til að bregðast við voðaverkum, og þar með hófst Öld kerlingarinnar, þann 22. júlí 2011.
Í boði kerlingarinnar sjáum við Norðurlönd breytast úr friðsömum velferðarsamfélögum í leikvöll glæpasamtaka, afþjóðun, væntanlegan vígvöll borgarastyrjaldarinnar þegar innfæddir snúast til varnar, til að endurheimta samfélög sín.
Aðeins heimskur heldur til dæmis að Svíar séu að vígvæða her sinn vegna meintrar ógnar af Rússum, sá heimski, sem yfirleitt er kerling, heldur að nú sé 1825, þegar Svíar voru nýbúnir að heyja aldalangar styrjaldir við Rússa.
Síðan eru liðin 200 ár, og í millitíðinni eru komin hernaðarbandalög, kjarnorkuvopn og fleira, element sem leyfa kjarnorkuveldum að böggast á nágrannaþjóðum sínum, en ekki að ráðast á yfirráðasvæði hvors annars.
Sænski herinn er að vígbúast til að heyja varnarstríð sænsku þjóðarinnar gagnvart glæpagengjum múslíma í Svíþjóð, gegn múslímskum innflytjendum sem eru Ríki í ríkinu í sænsku borgum.
Því það eru ekki allir Svíar kerlingar, þvert á flokka virðist vera sátt um vígvæðingu sænska hersins og væntanlega beitingu hans gegn Íslamistum Svíþjóðar, glæpagengjum þeirra, atlögum þeirra að vestrænum sið og menningu.
Atlögu þeirra að grunngildum sænsku þjóðarinnar.
Langur formáli um tilefni þessa pistils.
Vestrænar kerlingar, í valdastöðum, þar fremst er mannauminginn sem er í dag er forsætisráðherra Bretlands, áður níðingur sem horfði í hina áttina þegar íslamskt samfélag í breskum borgum tók uppá því að nauðga ungum breskum stelpum
Heimastelpum, innfæddum.
Kerlingarnar biðja fólk um að slaka á, að bæði Íran og Ísrael stígi til baka, slaki á.
Svo heimskar að þær halda að þetta snúist um frið við Íslamista Írans, að það sé í góðu að þeir vígvæði herafla sinn með kjarnorkuvopnum.
Fyrir Öld kerlingarinnar stjórnuðu menn Evrópu, þar var fremst Margrét forsætisráðherra Bretlands.
Staðfesta hennar batt endi á flugrán og önnur hryðjuverk öfgaafla.
Og hún hefði fyrir löngu skipulagt og framkvæmt þessar árásir á kjarnorkuvopnaframleiðslu Íslamistanna í Íran, og þá undir merki Nató.
En kerlingin skilur ekki ógnina.
Gerir ekki neitt.
Skilur svo ekkert í að árásaröfl ógni vestrænni menningu og velferð.
Hvort sem það er óheftur innflutningur á fólki úr framandi menningarheimum, innflutningur sem gagngert er hugsaður til að brjóta niður vestræna menningu og kristin gildi hennar, eða þegar dvergheimsveldi telur sig geta gefið vestrænum ríkjum fingurinn líkt og Pútín gerði með innrás sinni í Úkraínu.
Eða að miðaldaklerkarnir í Íran komi sér upp kjarnorkuvopnum.
Í sjálfu sér mun raunveruleikinn enda Öld kerlingarinnar.
Lítil birtingarmynd þess er hervæðing vestrænna landa, þar sem herinn er þjálfaður til að takast á við ógn múslímskra innflytjenda, glæpavæðingu þeirra og algjöra hundsun á gildum þeirra samfélaga sem tóku á móti þeim.
Stærri birtingarmynd þess eru skilaboðin til Rússa, við mætum ykkur, kerlingin stjórnar okkur ekki lengur.
Spurningin er síðan, hver margir munu deyja áður kerlingin mun endanlega missa áhrif sín og völd.
Íslamistar veðja á kerlinguna, hvort sem það er Hamas á Gasa, eða miðaldaklerkarnir í Íran.
Í Mið-Austurlöndum hafa Íslamistar skilið eftir sig sviðna jörð víða, líkt og illviðráðanlegur engisprettufaraldur, í dag eru Ísraelsmenn þeir einu sem andæfa gegn þeim.
Hin napra staðreynd sem ógnar lífi okkar og tilveru, er að fólk sem myrðir og drepur í nafni trúar, mun nota kjarnorkuvopn til að drepa og deyða margfalt fleiri en það gat drepið hingað til.
Þetta fattar ekki kerlingin.
En föttum við það??
Eða eigum við ekki líf sem við viljum vernda.
Þar er stórt spurt.
Spurning sem við höfum ekki svarað.
En þurfum að svara.
Þar gefur raunveruleikinn okkar engan afslátt.
Það er sótt að menningu okkar og sið.
Ef við verjumst ekki, þá segir raunveruleikinn okkur einfaldlega.
Ykkur verður skipt út.
Og spurningin er.
Viljum við það??
Kveðja að austan.
![]() |
Gert margar árásir á stærstu kjarnorkustöð Írana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.6.2025 | 17:10
Yfirtaka ESB verður varla augljósari.
En með skipun Dóru Sif Tynes sem formann stórnar Persónuverndar.
Þessi skipun kemur í kjölfar naumrar kosningar Góða fólksins á Silju Báru Ómarsdóttir í stöðu Rektors Háskóla Íslands.
Þegar ICEsave varnarbarátta þjóðarinnar stóð sem hæst, þá skrifuðu Dóra og Silja Bára grein sem fór víða hjá landráðafólki Samfylkingarinnar, þar sem þær sökuðu föður minn, tengdaföður og alla af þeirri kynslóð, um að vera vanskilamenn, því þeir mótmæltu fjárkúgun breta og Hollendinga í ICEsave, töldu sig ekki vera í ábyrgð fyrir flottræfilsskuldir úrásarvíkinganna.
Þar var Silja Bára vissulega taglhnýtingur, vitið ekki meira en guð gaf, en Dóra Sif lagði til lögfræðina, sem hæddi þessa samviskusömu kynslóð foreldra minna, og allra foreldra minnar kynslóðar.
Skuldir auðmann er ykkar samkvæmt EES samningnum fullyrti hún fullum fetum, og minna vitið tók undir.
Bretar, sem gamalt heimsveldi hafa löggjöf um slík drottinssvik, það er landráð í þágu erlendra árásaraðila, böðull drottningar hegndi í gálga slíkt svikalið þar til lögum var breytt í byrjun áttunda áratugarins.
Eftir það var aðeins lífstíð í boði gegn slíku fólki.
Í dag heyrum við um dóma frá þeim löndum sem mæta ógn Pútíns, ekki kannski lífsíð gagnvart meðreiðarsveinum hans, en engu að síður dæmt fyrir landráð og drottinssvik.
Á Íslandi verðlaunum við slíkt fólk.
Fyrrverandi forseti okkar var málaliði breta í ICEsave fjárkúgun þeirra.
Í dag er annar málaliði þeirra Rektor Háskóla Íslands, sem og nýr formaður Persónuverndar.
Það verður ekki dregið í efa að fyrrverandi forseti taldi sig vera að gera rétt með því að styðja fjárkúgunina gagnvart íslensku almenningi, og það má færa sterk rök fyrir að vitið sé ekki meira hjá núverandi rektor Háskóla Íslands.
En núverandi formaður stjórnar Persónuverndar vissi betur, hún er löglærð í Evrópurétti.
Dómur EFTA dómsins um lögleysu ICEfjárkúgunar breta með beinum stuðningi Evrópusambandsins, átti ekki að koma henni á óvart, ekki nema hún væri faglegur hálfviti.
Hve marga hún fíflaði með röngum lögfræðiskýringum sínum má guð vita, en fals hennar og lygar, eru kannski skálkaskjól fyrrverandi forseta og núverandi rektors Háskóla Íslands.
Sjálfstæð þjóð, þó hún hafi ekki sömu ströngu löggjöf Breta til drottinsvika, velur ekki svona fólk til trúnaðarstarfa.
Beygð þjóð, sem kaus yfir sig ríkisstjórn ESB, gerir það hinsvegar.
Ein af mörgum staðfestingum þess er þessi skipan Dóru Sifjar.
Líkt og kyrkingartak kyrkingarslöngu á bráð sinni.
Eða líf froskar sem smán saman fjarar út þegar hitinn í þægilega hlýja vatninu hitnar og endar í suðu, án þess að hann taki eftir að hann hafi verið soðinn lifandi.
Og eins og froskurinn þá æmtum við hvorki eða skræmtum.
Horfum þegjandi á þegar stríðsmálaráðherrann og Mini mini meðreiðarsveinn hans telja sig ekki einu sinni þurfa að láta þjóðina samþykkja formlega yfirtöku Evrópusambandsins á sjálfstæði þjóðarinnar.
Með fullu samþykki Sjálfstæðisflokksins, og líklegast Framsóknarflokksins líka.
Það þarf ekki lengur að deila um að Götuna höfum við ekki gengið til góðs.
Svo vitnað sé í þjóðskáldið sem sá Snorrabúð sem stekk á Alþingi.
Hjá ríkisstjórn sem 76% þjóðarinnar styður.
Um það þarf ekki að hafa fleiri orð.
Kveðja að austan.
![]() |
Dóra Sif nýr formaður stjórnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.6.2025 | 17:07
Þegar smár vegur að stórum.
Séra Friðrik er eitt af stóru nöfnum síðustu aldar.
Hann var guðsmaður, og líf hans var uppljómun kærleiks Krists, þeirrar undirstöðu kristinnar trúar sem vissulega margur guðsmaðurinn hefur til taks á tungu, en fátt í lífi hans staðfestir þau orð, hans kærleikur er í orði en ekki á borði.
Séra Friðrik vann þrekvirki á fyrstu áratugum 20. aldarinnar, þegar Ísland breyttist úr samfélagi hins gamla bændasamfélags, yfir í nútímann, iðnvæðingu sjávarútvegsins, fólksflutninga úr sveitum í bæi og borg, þegar fátt var til varðandi menntun, æskulýðsstarf, svo sem íþróttaiðkun, þar sem frumkvöðlar skópu nýtt samfélag, það samfélag sem við þekkjum í dag.
Af öðrum ólöstuðum þá var séra Friðrik þar fremstur, við þekkjum að nafn hans er tengt við kristilegt æskulýðsstarf þjóðkirkjunnar, KFUM og KFUK, þar sem kirkjan boðaði ekki aðeins trú sína, heldur skapaði umgjörð um heilbrigt æskulýðsstarf, þar sem áhersla var lögð á mannrækt og heilbrigði, í samfélagi fátæktar og örbirgðar hinna vinnandi stétta, þá fengu börn verkafólks tækifæri til að upplifa ævintýri sumarbúðanna, eitthvað sem á þeim tíma var margfalt þess þegar börnin okkar í dag fá að fara í Disney land, eða þá bara Tívolíið í Kaupmannahöfn.
Önnur birtingarmynd þessa æskulýðsstarfs séra Friðriks var stofnun íþróttafélaga, eitthvað sem var ekki til á Íslandi í upphafi 20. aldarinnar, en var stórt spor inní nútímann.
Flestir þekkja Val, það er það fólk sem veit að íslenska þjóðin á sér forsögu, en Haukar í Hafnafirði urðu líka til að frumkvæði séra Friðriks.
Þegar ekkert var til, þá eru svona frumkvöðlar ómetanlegir, og í lok 19. aldar og í byrjun 20. aldar var gæfa íslensku þjóðarinnar að eiga marga slíka frumkvöðla.
Hlutverk þeirra verður seint þakkað.
Og smá er sú þjóð sem í alsnægt nútímans ekki þakkar.
Kærleikur séra Friðriks átti sér margar aðrar birtingarmyndir en það að færa börn örbirgðarinnar æskulýðsstarf, fyrir mörgum árum las ég frásögn eldri konu sem rifjaði upp það hörmungarár 1918 þegar spænska veikin herjaði, flensa sem veikti marga og og margir dóu úr henni.
Það er í mannlegu eðli að óttast banvænar drepsóttir, þessi eldri kona, sem var ung þegar sóttin herjaði, man eftir og minntist á að þegar foreldrar hennar og systkini voru fárveik, þá kom einn maður með líkn.
Ekki aðeins kærleik, heldur líka vistir, sem og þá litlu lækningu sem hann gat veitt, að hjúkra og tala kjark í hina veiku, ólíkt Bakkabræðrum færði hann sól og birtu inná heimilið, hann gaf í kærleika Krists.
Þetta var séra Friðrik, áður, í annarri frásögn, tímaritagrein, hafði ég lesið um prestinn sem mætti til sjúkra, hugði ekki af eigin heilsu og öryggi, vildi líkna þar til yfir lauk, hvort sem það væri pestin sem gæfi eftir, eða hans eigin heilsa.
Sagnfræðingur í leit að jólasölu bókar sinnar, velti sér uppúr að á gamals aldri, þegar séra Friðrik var orðinn blindur eða hálfblindur, þá hefðu þáverandi stjórnendur KFUM/KFUK leitt unga stráka til goðsins sem séra Friðrik var orðinn á gamals aldri, og hann hefði kysst þá og kjassað, og það hafi farið misvel í þá.
Þarna komu saman fulltrúar ólíkra kynslóða, börn nútímans sem áttu land að erfa, og gamall maður sem ólst upp í hinu gamla bændasamfélagi, þar sem kynslóðarnar höfðu kysst og kjassað hvort annað í árhundruð, og ég sem er fæddur uppúr miðri síðustu öld man að stundum fannst mér nóg um.
En svona var þetta bara, hefur vissulega breyst, en þetta var óðháð kyni, enda slík skilgreining ekki til í hinu gamla bændasamfélagi sem var að líða undir lok.
Sagnfræðingurinn náði sölu, og hann náði athygli, sjálfur orðinn það elliær að þar með fattaði hann ekki að hann náði fyrir örfáa silfurpeninga að rústa bæði sinni æru og fræðiferli.
Áður stór, en núna smár, þó vissulega naut hann ljómans af hýenum Rétttrúnaðarins.
Hans val samt, það ráða allir sínum endalokum.
Verra var þegar lítilsigldur biskup þjóðkirkjunnar ákvað að taka undir gól hýenanna, enda vissi hún kannski innst inni að hún hlaut ekki upphefð sína vegna þess að hún var fremst meðal jafningja prestastéttarinnar, í boðun og skörungsskap (líkt og séra Sigurbjörn), heldur vegna þess að hún var kona, og meðreiðarsveinn.
Séra Friðrik átti að fordæma vegna þess að hann náði þeim aldri að verða aldraður maður. Í skjóli misviturra manna sem gerðu hann að einhverri helgiímynd í lifandi lífi.
Það var ekki séra Friðrik sem bað um börnin, þau voru færð til hans, og það eina sem hann gat var að sýna ástúð kynslóðanna, ástúð sem hann var alinn upp við, en þá var vissulega barn síns tíma.
Sú lítilssiglda skipaði ákærunefnd, og þar var poppprestur, séra Bjarni Karlsson fulltrúi þjóðkirkjunnar.
Hlálegt að eini lærdómur lútersku kirkjunnar, eftir um rúmlega 500 ára þvingaða starfsemi í skjóli Danakonungs, var að skipa farísea í anda þeirra sem krossfestu kærleik Krists.
Smámenni var látið hælbíta stórmenni.
Stærri var íslenska þjóðkirkjan ekki.
Fólk, sem ekkert hefur gert, nema hugsanlega gefið afslátt af aukabúgrein presta, að krefja almenning um þjónustugjald vegna ferminga, giftinga eða annað, þó viðkomandi séu á fullum launum hjá ríkisvaldinu að sinna þessum verkum, taldi sig umkomið að dæma mann sem í verkum sínum sýndi að Jesú, og kærleikur hans er ennþá lifandi.
Ævistarf hans er vitnisburður þar um.
Í stað þess að verja hann, að fá fólk til að skilja hugsun og hugsunarhátt genginna kynslóða.
Smán þjóðkirkjunnar og hinna lítilsigldu er ævarandi.
Hún lifir vissulega sem stofnun, og býr að arfleið sem íslensk þjóð er ekki tilbúin að gefa upp á bátinn, en það er háð þegar hún kennir sig við Krist, og boðskap hans.
Nær væri að tala um áskrifendur að launum og öruggu starfi.
Hins vegar er til fólk sem getur ekki þagað, það á minningar, og það á arfleið.
Hefur æru, og þekkir muninn á réttu og röngu.
Þessi pistill minn, sem er að gefnu tilefni, skrifaður af vangetu til að tjá eitthvað sem er mikilvægt, og skiptir máli varðandi samfellu sögu okkar, fortíðarinnar sem skóp okkur, nútímans sem er það sem við erum, og þeirrar framtíðar sem við ættum að vilja börnum okkar, hefur lengi blundað í mér.
Mér ofbauð árás hinna íslensku Talibana sem líkt og sálufélagar þeirra í Afganistan, réðust á minnismerki liðanna alda, það er eins og þetta aumkunarverða fólk hafi drukkið í sig fréttamyndir af eyðileggingu Íslamistanna í Ríki Íslams á fornum minjum rómversku borgarinnar Palmyra í Sýrlandi.
Og sagt; við skulum gera þetta líka.
Réðst á minningu manns sem var miklu stærra en það sjálft, og það mun nokkurn tímann verða.
Hollvinasamtökin um séra Friðrik eiga allan þann heiður sem ennþá lifir meðal vor.
Þarna eru kjarkaðir einstaklingur sem mæta ofsa og fordæmingu hins pólitíska rétttrúnaðar Góða fólksins.
Mæta smækkun og smán þjóðkirkjunnar, eða fólksins sem erfði arfleið séra Friðriks, og hafði hvorki kjark eða manndóm til að standa með þeirri arfleið.
Á meðan svona fólk er til, þá er samfélag okkar og gildi ennþá lifandi, forheimska og fávitaháttur Góða fólksins hefur ekki gengið að því dauðu, að gildin sem eru kennd við mennsku og mannúð lifi ennþá á Íslandi í dag.
Þau munu vinna til heilla, hvernig sem fer.
Því það er ekki niðurstaðan sem skiptir máli, heldur að til sé ærlegt fólk sem hefur sannfæringu, og lætur ekki forheimskuna og fordæminguna kúga sig, knésetja sig.
Það eina sem ég get sagt, það er fyrir utan allt sem ég hef sagt hér að ofan.
Er;
Hafið þið mikla þökk fyrir.
Með kveðju að austan.
![]() |
Stofna hollvinasamtök um mál sr. Friðriks |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
4.6.2025 | 08:50
Þegar lygin ræðst á raunveruleikann.
Þá er fokið í flest skjól ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur.
Fjármálaráðherra reyndi að slátra frumvarpi Ingu Snæland um að tengja bætur almannatryggingakerfisins við launavísitölu, að kalla slíkt einhug nær ekki einu sinni að vera öfugmæli.
Góð blaðamennska tekur núna viðtal við fjármálaráðherra, spyr hann um þennan meinta einhug og hvort hann hafi ekki frétt að því að þetta frumvarp var kynnt sérstaklega þegar forystukonur ríkisstjórnarflokkanna kynntu hina nýju stjórn sína.
Spyrja hann hvað honum gangi til með að vinna gegn þessari yfirlýstu stefnu.
Spyrja hvað honum gangi til með því að setja forsætisráðherra í þá stöðu að þurfa að ítreka að þetta frumvarp Ingu væri einmitt stefnumál ríkisstjórnar hennar.
Spyrja hann af hverju hann er í stjórnarandstöðu í hans eigin ríkisstjórn.
Það viðtal getur aldrei orðið annað en grafarskrift Valkyrjanna eða Daða.
Því til lengdar er ekki hægt að stjórna á lyginni einni saman.
Kveðja að austan.
![]() |
Einhugur í ríkisstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.6.2025 | 17:10
Víðir sagði; Ég er vanur að ráða.
Hélt að hann væri gegnir guðlegir stjórnendur líkt og Lúðvík 14. sem sagði eins og Víðir; Ég er ríkið.
Víði samt vorkunn því í den tókst honum að loka samfélagi okkar í marga, marga mánuði án þess að nokkur heilsufræðileg rök lágu að baki.
Það sem Víðir greyið fattar ekki, er að núna er hann ekki hluti af alræðisstjórn Ölmu, núverandi heilbrigðisráðherra, sem og bítlans sem ég man ekki hvað heitir.
Alræði þarf ekki að virða lög, en sem þingmaður þarf Víðir að virða lög og reglur þjóðar okkar.
Samt vó hann að stjórnsýslunni, þeirri erfiðustu, þeirri sem löggjafinn fól að reglur þyrfti að virða, þegar kom að stjórnlausum innflutningi fólks sem leitaði að betri lífskjörum, og nýtti sér hálfvitalöggjöf barnsins sem Sjálfstæðisflokkurinn skipaði sem dómsmálaráðherra.
Gegn því barni greip Guðrún Hafsteins inní, með nýrri löggjöf áður en hún sigraði flokkseigandafélagið sem bauð fram barnið gegn fullorðni manneskju.
Eftir standa lög sem þarf að virða, og stjórnsýslan þarf að fara eftir.
Svo var það Víðir, af öllum mönnum, sem taldi að lög þyrfti ekki að virða, hann var jú vanur alræði Ölmu.
Það er að hann, sjálfur Víðir, hluti af ofurgenginu sem lagði mannlíf í fjötra langt fram yfir efni og tilgang, kvaðst stoltur ganga gegn stjórnsýslu laga og reglna.
Og sérsveit Ríkislögreglustjóra er ekki ennþá búin að handtaka hann og handjárna.
Enda Víðir ekki samlokuþjófur, eða einstaklingur í geðrofi, sem fékk ekki hjálp eða þjónustu samfélagsins, því ekki er bæði hægt að hjálpa innlendum, eða borga milljarða í flótta og hælisiðnað alþjóða glæpasamtaka sem virðast hafa stjórnað dómsmálaráðuneytinu um langa tíð, tíð sem er talin í árum, árum sem marka hrun velferðaþjónustu gagnvart börum og ungmennum okkar í vanda.
Víðir gengur laus því hann er aðeins enn einn vikadrengurinn fyrir mannsals og flóttamannaiðnaðinn.
Hans kannski afsökun er að hann fattar ekki hlutverk sitt, telur kannski að hann sé aðeins nytsamur sakleysingi.
Grátlegast samt er að Mogginn, þetta einu sinni borgaralega blað, sem á allar sínar tekjur undir stuðningi borgaralega afla, skuli tengja einhvern Snorra við þessa frétt um geræði Víðis, um hans beinu árás að lögum og rétti, sem ennþá eru tali í gildi á Íslandi 2025.
Miðað við fréttina er Víðir lögbrjótur, telur sig hafinn yfir lög og reglur samfélags okkar.
Og samt er fréttin látin snúast um piltinn Óskar, sem ég sannarlega vildi að fengi staðfestu á búsetu, en ekki gegn lögum og reglum.
Eða geðþótta þeirra sem telja sig hafna yfir þau lög og reglur.
Á Mogganum er fólk sem berst gegn fávitahætti Góða fólksins, og ennþá eru þar blaðamenn sem eru blaðamenn, en ekki fífl.
Til dæmis fífl sem hafa skráð sig í áróðursdeild Hamas á Íslandi.
Það fólk, sem er allavega fólk, en ekki fífl rétttrúnaðarins, á að segja fréttir.
Fréttin er að Víðir, fyrrverandi lögreglumaður, telur sig hafinn yfir lög og reglur.
Og hann gengur ennþá laus.
Þó hann segist vanur að ráða, þá var það þegar öll borgarleg réttindi almennings voru tekin úr sambandi.
Í dag gilda þau.
Og Mogginn segir ekki orð.
Kveðja að austan.
![]() |
Ákvað sjálfur að upplýsa Útlendingastofnun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.6.2025 kl. 06:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.6.2025 | 08:36
Eru tvær ríkisstjórnir í landinu??
Það er mjög sérstakt að lesa í þessari frétt Mbl.is að efnhags og fjármálaráðuneytið sé aðalandstæðingur fyrirhugaðs frumvarps félags og húsnæðismálaráðuneytisins, sérstaklega í ljósi þess að viðkomandi frumvarp var eitt helsta stefnumál ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur
Og kynnt þannig af Valkyrjunum þremur þá daga sem ekki var hægt að opna sjónvarpið án þess að þær sungu og hlógu því það var svo gaman að vera kominn í ríkisstjórn, og já; í sjónvarpið.
Núna á einhver kall út í bæ, sem enginn kaus, að stöðva þetta helsta velferðarmál Valkyrjanna.
Hvaða vinnubrögð eru þetta??
Var allan tímann verið að blekkja fólk, plata??
Voru þetta orð án innistæðna??
Það segir allt sem segja þarf að einhverjir dvergar í stjórnarandstöðunni séu dregnir fram til álitsgjafar, að segja kampakátir; I told you so, og vitna í kallinn sem enginn kaus. En virðist ráða öllu.
Málflutningur hans, er málflutningur dverganna, að vitna í hann er eins og þeir séu að vitna í sjálft almættið.
Segir allt um stjórnarandstöðuna sem og þá flokka í ríkisstjórn sem láta bjóða sér þetta alræði.
Það segir líka allt um umræðuna í samfélaginu, að kallinn sem enginn kaus, skuli stjórna því sem er gert, og hvað ekki.
Og að fólk skuli trúa því að það séu aldrei til peningar handa hinum minnum bræðrum og systrum.
Aðeins séu til peningar til að fóðra glæpasamtökin sem standa að baki hælisiðnaðinum, eða til að fjármagna stríðsæsingar stríðsmálaráðherrans.
Þá koma engin minnisblöð frá kallinum sem enginn kaus.
Flokkur fólksins lét plata sig.
Samfylkingin lét plata sig, í dag er Kristrún í besta falli aðeins meðreiðarsveinn stríðsmálaráðherrans og kallsins sem enginn kaus.
Hún fær að vera "memm" ef hún hlýðir, ef hún aðeins segir Já.
Svo tala menn um skuggastjórnina að baki Biden.
Hann var þó elliær, en síðast þegar ég vissi þá eru hvorki Inga eða Kristrún án meðvitundar eða núvitundar, þær eru ekki Biden.
Þó það sé gaman að vera í ríkisstjórn, og fá jafnvel að koma í sjónvarpið endrum og eins, þá snýst samt veran í ríkisstjórn um völd og áhrif.
Og um þau völd og áhrif er samið.
Samninga sem þarf að virða.
Þessi frétt bendir til þess að það hafi aldrei hvarfað að Viðreisn.
Og hvað gera bændur þá???
Syngja??
Eða??
Ég veðja á sönginn.
Kveðja að austan.
![]() |
Ráðuneytið hjólar í frumvarpið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Ómar Geirsson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (17.6.): 889
- Sl. sólarhring: 919
- Sl. viku: 2844
- Frá upphafi: 1447747
Annað
- Innlit í dag: 733
- Innlit sl. viku: 2437
- Gestir í dag: 606
- IP-tölur í dag: 592
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar